Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs 2021

1. SÆTI

Englabróðir

 

Stóri bróðir ég sakna þín.

Eitt það sem ég þrái heitast er bara að sjá þig,

bara einu sinni alla vega.

En ég veit að þú ert alltaf hjá mér

og gætir mín í gegnum skýin.

 

Nú værir þú tólf ára,

tveimur árum eldri en ég.

Þú myndir gæta mín samt,

þótt við hefðum fengið að vera hér

samtímis.

En nú gerir þú það í gegnum skýin.

 

Það er skrítin tilfinning að sakna þín

án þess að hafa hitt þig.

Mér finnst ég hafa hitt þig

í gegnum minningar þeirra

sem þekktu þig best

og við elskum báðir.

 

Þú hést Rafn, ég heiti Rafnar

því ég gæti krummans þíns.

 

Kári Rafnar Eyjólfsson
5. bekk Álfhólsskóla

2. SÆTI

Litaða dimman

 

Dimman svífur yfir ljósið og þau heilsast

og gefa hvort öðru ljós og dimmu

 

Árelía Ísey Benediktsdóttir
5. bekk Waldorfskólanum

3. SÆTI

Lífið

Lifðu Lífinu, Lífið er stutt

Gerðu það sem þú vilt ekki hlusta á það sem aðrir segja.

Hlustaðu bara á góðu hlutina. Aldrei láta neinn stoppa þig.

 

Rayan Sharifa
8. bekk Álfhólsskóla

SÉRSTAKAR VIÐURKENNINGAR

Matiass Preiss, 6. bekk Waldorfskólanum

Bófinn og gulleplið

Bófi fór að stara
klessti á tré með hraða
myrkrið settist ofan á hann
fjólublár bæði og svangur var
en í öngum sínum át hann því
gulleplið sem hann stal frá því
át það með hraða
en það var allt og sum

Rökkvi Valsson 10. AH Lindaskóla

Elsku kæra besta eiginkona

Elsku kæra besta eiginkona
Þú ert ljósið í lífi mínu,
hafrarnir í hafragrautnum,
sósan á kjötið mitt,
geisladrifið í tölvunni minni
og blekið í penna mínum

Hildur Freyja, 5. bekk Waldorfskólanum

Ég mála

Ég mála
Ég föndra
Ég fer í skóla
Ég fer í stærðfræði
Ég lita
Ég elska

Sandra Mulamuhic Alensdóttir, 10. TKL Álfhólsskóla

Kvíði

Ég er föst.
Föst í flugvél.
Ein.
Ég svíf yfir hafið og borgir.
En ég er ekki frjáls. Ég er hrædd. Ég þarf að lenda.
Ein.
Hægt og rólega fer vélin að síga.
Ég veit að ég er ekki að fara að lifa þetta af.
Ég næ ekki að hugsa.
Allt þýtur um heila minn.
Upp er niður og hægri er vinstri.
Ég næ ekki að anda.
Vélin sígur hraðar og hraðar og ég verð hræddari og hræddari.
Þótt ég nái sambandi við manneskjur á landinu er eins og öllum sé sama.
„Þú reddar þessu.”
„þetta er nú ekkert stórmál.”
„Þú ert að ýkja.”
„Slakaðu bara á.”
Hugur minn er flugvélin.
Ég er föst.
Ein.

Evie Rós Guðmundsdóttir, 5. bekk Waldorfskólanum

Ljósið mitt

Megi ljós mitt lýsa í hjarta þitt
Far þú út í kvöld
Dönsum alla nóttina

Katrín Hekla Magnúsdóttir og Marcelina Lapka 10. AH, Lindaskóla

Te

Lífið er eins og sítrónute,
getur verið súrt og sætt.
Vinátta er eins og berjate,
kemur í mörgum litum.
Ástin er eins og rósate,
hlýjar þér að innan.
Framtíðin er eins og ávaxtate,
kemur þér á óvart.
Gleði er eins og jarðarberjate,
litrík og fersk.
Ótti er eins og jurtate,
óþægilegt og skrítið.
Traust er eins og grænt te,
öruggt og hlýtt.
Dauðinn er eins og kaffi,
bitur og svartur.

Bjarni Gunnlaugsson, 6. bekk Salaskóla

Tréð eldist

Tréð eldist
og lengist
og endar í eldi

Dómnefnd skipuðu Ásta Fanney Sigurðardóttir, Eiríkur Ómar Guðmundsson og Kristín Svava Tómasdóttir.