Við bjóðum ykkur hjartanlega á gjörningakvöld í Gerðarsafni, 28. Ágúst kl 20:00!
Formleg opnun hátíðarinnar er kl 18:00.
Hamraborg Festival tekur yfir Gerðarsafn og bílakjallarann við Molann með kvöldstund þar sem líkamar, vélar, óhljóð, draumar, hreyfingar og dálítið af dýrlegri ringulreið ráða ríkjum.
Eistneska danstvíeykið Juliuus Vaiksoo og Helena Tõrva leiða okkur inn í undurfagran líkamlegan glundroða. Michael Richardt ásamt Agli Ásdísarsyni leyfa tónum að flæða og enduróma um sýningarrýmin í Sæborgískum hljómflutingi. Silfrún Una fær bíla til að dansa og tala á meðan saumavélar og hárkambar stíga inn í hljóðgjörning Lindy Lin þar sem gestum býðst að fylgja hljóðinu hvert sem það leiðir.
Krónikan verður opin allt kvöldið! DJ kveikir svo í dansgólfinu að gjörningum loknum.
Sjáumst á Gerðarsafni!











