02.sep 2026 18:30 - 21:00

Kvikmyndasýning: Everybody in the Place: An Incomplete History of Britain 1984-1992 (2018) og Our Hobby is Depeche Mode (2008) eftir Jeremy Deller

Gerðarsafn

Verið velkomin á kvikmyndasýningu á verkunum Everybody in the Place: An Incomplete History of Britain 1984-1992 (2018) og Our Hobby is Depeche Mode (2008) eftir Jeremy Deller í Salnum 2. september klukkan 19:00.

Áður en myndir Jeremy Deller verða sýndar í Salnum munu þátttakendur úr smiðju Reykjavík Poetics: Art Poetica: Ekphrasis-ritlistaræfing, lesa upp texta sem unnir voru í smiðjunni. Smiðjan fer fram í Gerðarsafni fyrr sama dag, en þar stendur nú yfir sýning Jeremy Deller, Landlæg hamingja

Í kvikmynd Dellers Everybody in the Place: An Incomplete History of Britain 1984-1992 (2018) sýnir Deller fram á tengingar milli reif-menningar og mótmæla. Hvernig grasrót tengist pólitísku landslagi og borgaralegri óhlýðni; sérstaklega í Norður-Englandi með ólöglegum danshátíðum sem voru haldnar í yfirgefnum verksmiðjum, þar sem ungt fólk bókstaflega dansaði árústum iðnaðaraldar.
Kvikmyndin er í formi fyrirlestrar þar sem Deller ræðir við hóp ungs fólks í gagnfræðiskóla og býður þeim að túlka viðfangsefnið og skapa sína eigin merkingu. Verkið sýnir kennslu nálgun Dellers, þar sem hann fangar flóknar hugmyndir og miðlar þeim á grípandi hátt.

Our Hobby is Depeche Mode (2008) fjallar um hvernig fólk þróar náin tengsl við popp tónlist, aðlagar hana og notar í eigin lífi. Eins og einn af fjölmörgum aðdáendum þeirra segir, „Það hljómar fáránlega en þetta er áhugamálið okkar. Depeche Mode er ekki bara ástríða. Annað fólk fer í ræktina eða stundar íþróttir. Áhugamál okkar er Depeche Mode.“ Jeremy Deller leikstýrði verkinu ásamt Nick Abrahams en þeir ferðuðust til Rússlands, Mexíkó, Bandaríkjana, Þýskalands, Rúmeníu, Íran, Brasilíu, og Kanödu til þess að mynda aðdáendur bresku syntha hljómsveitarinnar frá Basildon.

Eftir sýninguna mun DJ Logi Leó þeyta skífum.

Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

Meðfylgjandi mynd er birt með leyfi listamannsins og The Modern Institute/ Toby Webster Ltd., Glasgow

Deildu þessum viðburði

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
29
ágú
Gerðarsafn
01
sep
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

26
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Gerðarsafn
28
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
28
ágú
Gerðarsafn
29
ágú
Gerðarsafn
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
10
sep
19
sep
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

26
ágú
Gerðarsafn
28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
28
ágú
Gerðarsafn
29
ágú
Gerðarsafn
03
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira