Barnabókateiknarinn Barbara Árnason er uppspretta vangaveltna um ferðalanginn en sjálf fluttist Barbara til Íslands frá Bretlandi árið 1937. Þátttakendur vinna út frá eigin sögum og teikningum um ferðalög og fjarlæg lönd.
Smiðjan verður óháð tungumáli og er ætluð allri fjölskyldunni. Leiðbeinendur tala pólsku, íslensku, arabísku, frönsku, ensku og þýsku og er markmiðið að byggja upp samskipti þvert á tungumál og menningarheima. Verkefnið er styrkt af nefnd um fullveldisafmæli Íslendinga.
Menningarhúsin í Kópavogi bjóða uppá fjölbreyttar fjölskyldustundir á hverjum laugardegi. Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.