Sumartónleikar Bachelsis verða haldnir næstkomandi fimmtudag, 12. júlí, kl. 18. í sýningarsal Gerðarsafns, innan um verk Gerðar Helgadóttur á yfirstandandi sýningu safnsins; Gerður: Yfirlit. Bachelsi samanstendur af fiðluleikurunum Ingibjörgu Ástu Guðmundsdóttur og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur en þær kynntust við nám í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Í sumar hafa þær tekið fyrir tónverk J. S. Bach með nýrri nálgun og útsett með fleiri hljóðfæraleikurum. Tónleikarnir eru tæpur klukkutími að lengd og að þeim loknum er boðið upp á bakkelsi á neðri hæð safnsins þar sem áður var Garðskálinn. Tónlistarmenn sem koma fram ásamt tvíeykinu eru: Katrín Helga Ólafsdóttir á rafbassa, Rögnvaldur Konráð Helgason, óbó og Brynjar Friðrik Pétursson á klassískum gítar.