Fyrsta Fjölskyldustund haustsins fer fram í öllum Menningarhúsunum og er ætlað að kynna öfluga dagskrá vetrarins. Í Stúdíó Gerðar á neðri hæð Gerðarsafns verður opin skúlptúrsmiðja þar sem óhefðbundin efni eru kynnt og listamaður verður á staðnum til að aðstoða fólk við samsetningu. Smiðjan hefst kl.13 og stendur til 15.
Salurinn býður upp á tónleika með Völu Guðnadóttur sem syngur lög úr þekktum teiknimyndum en tónleikarnir hefjast kl. 13:00 og um að gera að mæta tímanlega til að næla sér í sæti. Bókasafnið kynnir gömul og ný leikföng bæði úti og inni og á Náttúrufræðistofu eru vatnaplöntur skoðaðar og pressaðar.
Dagskráin er ókeypis og allir velkomnir!