Klassískt aðventukvöld með jólalestrum, kertaljósi og fallegri aðventutónlist. Skólakórar Kársness og Kór Kópavogskirkju syngja aðventulög og jólasálma. Fulltrúar Tónlistarskóla Kópavogs leika á hljóðfæri. Lenka Matéóvá og Álfheiður Björgvinsdóttir stýra kórum. Prestar og djákni safnaðarins taka á móti fólki og leiða stundina.
Öll hjartanlega velkomin
Á þessari aðventu verður meira en eingöngu hefðbundin aðventudagskrá í Kópavogskirkju. Ástæðan er að Kópavogskirkja á 60 ára vígsluafmæli í desember. Þessi einkenniskirkja Kópavogs hefur mætt fólki í gleði og sorg í 60 ár, og nú fögnum við afmæli hennar.