15.sep 2026 14:00 - 15:30

Barnarímnatónleikar

Salurinn

Salurinn

Barnarímnatónleikar í Salnum á Degi rímnalagsins

Dagur rímnalagsins er haldinn þann 15. september ár hvert og skapast hefur sú hefð að fá á svið VÖKU unga flytjendur sem hafa tileinkað sér eina elstu sönghefð landsins undir leiðsögn reyndra kvæðamanna.

Skólakór Kársness sem í ár fagnar 50 ára starfsafmæli, flytur þjóðlög og rímnalög í fallegum útsetningum, þ.á.m. Þýtur í stráum sem Sigurður Rúnar Jónsson útsetti fyrir kórinn árið 2000. Kórinn hefur haldið marga tónleika innanlands sem utan og gefið út nokkrar plötur. Stjórnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir.

Sönghópur úr Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík kveður fjölbreytt rímnalög við vísur sem þau hafa unnið með í skólastarfinu.  Kennari og stjórnandi þeirra er Kolbrún Hulda Tryggvadóttir.

Kvæðabarnafjelag Laufásborgar var stofnað árið 2023 og hefur frá upphafi lagt áherslu á að kynna börn fyrir íslenskum kveðskap og rímnasöng. Kvæðamaðurinn Steindór Andersen var einn helsti lærifaðir barnanna í kveðskapnum, auk þess sem fleiri kvæðamenn og konur hafa komið að kennslu og leiðsögn, þar á meðal Bára Grímsdóttir. Kvæðabarnafjelaginu stýrir Ari Hálfdán Aðalgeirsson. 

Tónleikarnir gefa áheyrendum kost á að kynnast rímnasöngnum í flutningi barna og ungmenna og sýna hvernig þessi forna sönghefð berst áfram í gegnum raddir nýrra kynslóða. 

Tónleikarnir hefjast kl. 14 og er aðgangur ókeypis.

//

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

01
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

04
okt
Salurinn
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
15
okt
Salurinn
16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira