01.jún 13:30

Salurinn

Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari hafa starfað um árabil sem einleikarar og tekið þátt í flutningi á kammertónlist bæði hér á Íslandi sem og erlendis. Þau stilla nú sína strengi saman í þessari stórbrotnu efnisskrá með verkum eftir César Franck og Ludwig van Beethoven.

Ludwig van Beethoven (1770 – 1827)
Rómansa fyrir fiðlu og píanó (úts. Richard Simm)

César Franck (1822 – 1890)
Sónata fyrir fiðlu og píanó
I. Allegretto ben moderato
II. Allegro
III. Recitativo -Fantasia. Ben moderato – Molto lento
IV. Allegretto poco mosso

Ludwig van Beethoven
Kreutzer-sónatan, sónata nr. 9 fyrir píanó og fiðlu
I. Adagatio sostenuto – Presto
II. Andante con variazioni
III. Finale. Presto

Fiðlusónata César Franck er á meðal vinsælustu verka sem samin hafa verið fyrir þessa hljóðfæraskipun, hádramatísk og ótrúlega áhrifamikil en verkið gerir miklar kröfur til beggja hljóðfæraleikara. Belgíska tónskáldið César Franck samdi hana fyrir samlanda sinn, fiðlusnillinginn Eugène Ysaÿe sem frumflutti árið 1886 ásamt píanóleikaranum Marie-Léontine Bordes-Pène.

Kreutzer-sónatan var frumflutt árið 1803 af fiðluleikaranum George Bridgetower og Beethoven sjálfum. Síðar átti Beethoven eftir að tileinka sónötuna Rodolhpe Kreutzer sem var á meðal fremstu fiðluleikara Evrópu í upphafi 19. aldar. Líkt og sónata Franck býr Kreutzer-sónatan yfir ótrúlegum áhrifamætti og djúpri fegurð en verkið tekur um 40 mínútur í flutningi þar sem bæði hljóðfærin skipa gríðarstóran sess.

Á undan tónleikunum, kl. 13, verður boðið upp á tónleikaspjall í fordyri Salarins þar sem skyggnst verður inn í efnisskrá dagsins.

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Salarins og FÍT-klassískrar deildar FÍH.


Sif Margrét Tulinius fiðluleikari hefur verið atkvæðamikil í íslensku tónlistarlífi um árabil. Að einleikaraprófi loknu vorið 1991 hlaut hún Fulbright styrk til frekara náms í Bandaríkunum þaðan sem hún lauk meistaranámi sínu frá New York í samstarfsverkefni milli Juilliard tónlistarháskólans og Stony Brook háskólans. Hún fluttist þá til Evópu og lék þar ásamt ýmsum tónlistarhópum á fjölmörgum tónlistarhátíðum víðs vegar um heiminn.

Haustið 2000 var Sif Margrét ráðin til starfa í stöðu 2. konsertmeistara við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún gegndi því starfi allt til ársins 2016 er hún fluttist til Berlínar þar sem hún bjó um nokkurra ára skeið og lék ásamt fjölmörgum virtum tónlistarhópum m.a. Berliner Philharmoniker. Sif hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands m.a. í flutningi á fiðlukonsert Gubaidulina, Fylgjum Þorkels Sigurbjörnssonar og Partitu eftir Lutoslawski.

Sif kemur reglulega fram á kammertónleikum og hefur bæði sjálfstætt og ásamt öðrum tekið virkan þátt í flutningi nútímatónlistar. Einleiksdiskur hennar De Lumine kom út í nóvember síðastliðnum og innheldur hann nýlegar hljóðritanir af þremur nýjum íslenskum einleiksverkum fyrir fiðlu. Flutningur Sifjar Margrétar á De Lumine hefur hlotið lof gagnrýnenda bæði íslenskra og erlendra tónlistartímarita og var De Lumine valinn geisladiskur ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í mars 2025.

Richard Simm er fæddur í Newcastle á Englandi og hefur verið búsettur á Íslandi um langa hríð. Hann nam við Royal College of Music í London hjá Bernard Roberts og við Staatliche Hochschule für Musik í München hjá Erik Then-Bergh. Hann vann til fjölmargra verðlauna á námsárum sínum, fékk þar á meðal tvenn verðlaun fyrir túlkun sína á verkum Chopin. Richard hefur haldið tónleika í Wigmore Hall og Purcell Room í London og hefur auk þess komið fram á ótal tónleikum í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Íslandi, þar sem einleik hans hefur verið lýst sem einu af best geymdu leyndarmálum landsins.

Deildu þessum viðburði

22
apr
30
ágú
Bókasafn Kópavogs
30
jún
04
júl
Náttúrufræðistofa Kópavogs
01
júl
Bókasafn Kópavogs
01
júl
Bókasafn Kópavogs
02
júl
Bókasafn Kópavogs
02
júl
Bókasafn Kópavogs
03
júl
Salurinn
04
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

05
júl
Gerðarsafn

Sjá meira

04
sep
Salurinn
06
sep
Salurinn
26
sep
Salurinn
27
sep
Salurinn
02
okt
Salurinn
09
okt
Salurinn
16
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
júl
Bókasafn Kópavogs
01
júl
Bókasafn Kópavogs
02
júl
Bókasafn Kópavogs
02
júl
Bókasafn Kópavogs
03
júl
Salurinn
04
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

05
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

03
júl
Salurinn
10
júl
Salurinn
17
júl
Salurinn
Mynd: Saga Sig
14
ágú
17
ágú
Salurinn
04
sep
Salurinn
06
sep
Salurinn
07
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn

Sjá meira