Samkór Kópavogs mun syngja inn aðventuna með ljúfum og fallegum aðventu- og jólalögum sunnudaginn 3. desember kl. 17 í Digraneskirkju.
Einsöngvari á tónleikunum er tenórsöngvarinn Gunnar Björn Jónsson tenór, orgel- og píanóleikari er Lenka Mátéóva og stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson.
Verðið öll hjartanlega velkomin.
Miðasala er hjá kórfélögum (samkor@samkor.is) og við innganginn.