Flytjendur
Anna-Maria Kahilainen – Flauta
Berglind María Tómasdóttir – Bassaflauta og Piccolo
Sölvi Kolbeinsson – Alto Saxófónn
Kjartan Hugi Rúnarsson – Tenor Saxófónn
Tumi Árnason – Tenor Saxófónn
Tumi Torfason – Trompet
Anna Wieland – Harmonika
Magdalena Lorenz – Fiðla
Maximiliane Norwood – Fiðla
Friðrik Örn Sigþórsson
BA Hljóðfæratónsmíðar
Bassaleikarinn og tónskáldið Friðrik Örn er með víðtæka reynslu úr íslenska tónlistargeiranum, hann er virkur meðlimur í ýmsum verkefnum þvert á tónlistarstíla t.d. rokkhljómsveitinni Hyl, hljómsveit Kára Egils, progg-rokksveitinni Project Reykjavík og djasstríói Matthíasar Helga Sigurðarsonar. Ásamt þessu hefur hann komið fram með ýmsu tónlistarfólki hvaðanæva að úr bransanum, t.d. Jónfrí, Rebekku Blöndal, Ara Árelíus og Frumburði.
Friðrik hóf nám á bassa við tónlistarskóla FÍH árið 2017 en færði sig fljótlega yfir í MÍT, þar lagði hann stund á bassanám undir handleiðslu Birgis Bragasonar og Þorgríms Jónssonar sem og aukanám í rytmískum söng undir handleiðslu Jóhönnu Linnet. Friðrik hefur frá unglingsárum verið iðinn við að semja lög og texta, en í MÍT fékk hann tækifæri til að prófa sig áfram í útsetningum og þróa tónsmíðar sínar frekar.
Hann fann að þetta væri spennandi vettvangur fyrir sig og leiddi það til þess að eftir útskrift skráði hann sig í tónsmíðanám við LHÍ. Þar lærði hann fyrst undir handleiðslu Páls Ragnars Pálssonar svo Bergrúnar Snæbjörnsdóttur. Á námsleið sinni í LHÍ hefur Friðrik fært sig ört í tilraunakenndari tónlist og náð að þróa sinn stíll sem mætti lýsa sem dimmum, dulúðum, marglaga heim sem einkennist af tilraunum til að teygja hefðbundinn hljóðheim hljóðfæranna.
Um verkið
Awaive
Fljótandi áreynslulaust, höfuðið stendur upp úr.
Taktföst spörkin virðast árangurslaus, stendur í stað.
Kjálkinn klýfur yfirborðið, þeysist fram, skrokkurinn eltir.
Awaive er í grunninn hugleiðing á mörkum spuna og tónsmíðar.
Nótnaskriftin leysist smám saman upp, þar til ekkert stendur eftir nema innsæi flytjenda.












