03.feb 2023 18:00 - 23:00

Gallerí Göng | frestast vegna veðurs

Menning í Kópavogi

Gömlu skiptistöðvargöngin við Hamraborg
Gömlu skiptistöðvargöngin á milli Fannborgar og Digranesvegs verða að lifandi útigallerýi.

Vegna veðurs féll þessi viðburður niður en verður síðar þegar veður leyfir.

Ungt vegglistafólk á vegum Molans ungmennahúss umbreytir gömlu skiptistöðvargöngunum í Hamraborginni* í lifandi útigallerí. Gestum viðburðarins gefst tækifæri á að upplifa listamennina að störfum, spjalla við þá og fylgjast með verkum þeirra þróast yfir kvöldið.

Listafólkið sem kemur fram hefur allt tekið þátt í verkefnum og verið virkir í starfsemi Molans ungmennahúss undafarin ár. Þessi sögufrægu göng, sem voru vettvangur pönkara og jaðarhópa á sínum tíma, hafa skapað sér sögu innan graffiti og vegglistarmenningar á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár og haldið áfram að þjóna ungu fólki sem vettvangur fyrir tjáningu og listsköpun.

Listafólkið verður að störfum frá kl. 18 til kl. 22 og eftir það verður sýningin opin allan sólarhringinn. Hún mun svo umbreytast í tímans rás með nýrri list og nýju listafólki.

*Skiptistöðvargöngin liggja á milli Gjábakka við Fannborg 8 og Héraðsskjalasafnsins í Kópavogi við Digranesveg 7.



Young mural artists under the auspices of Molinn Youth Center transform the old exchange tunnel in Hamraborg into a living outdoor gallery. The guests of the event are given the opportunity to experience the artists at work, chat with them and watch their work develop throughout the evening. It will be interesting to see this remarkable cultural place turn into an open gallery and illuminate the midwinter darkness. The tunnel will subsequently be a fun opportunity for art lovers.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
nóv
25
apr
Salurinn
26
nóv
Bókasafn Kópavogs
26
nóv
Bókasafn Kópavogs
26
nóv
Bókasafn Kópavogs
26
nóv
Salurinn
27
nóv
Salurinn
27
nóv
Bókasafn Kópavogs
27
nóv
Bókasafn Kópavogs
27
nóv
Bókasafn Kópavogs
20:00

Bókaspjall

01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Menning í Kópavogi

30
nóv
Menning í Kópavogi
12:00

Jólalundur

07
des
Menning í Kópavogi
12:00

Jólalundur

14
des
Menning í Kópavogi
12:00

Jólalundur

21
des
Menning í Kópavogi
12:00

Jólalundur

Sjá meira