04.jún 2026 17:00

Hundur í óskilum | Sumartónar í Salnum

Salurinn

Sumartónar snúa aftur í Salinn. Í júní býður Salurinn, í samstarfi við Menningar- og Mannlífsnefnd Kópavogs, gestum sínum í ljúfar tónlistarstundir í forsal Salarins.

Fyrst stíga á stokk húmoristarnir og tónlistarmennirnir í Hundur í Óskilum. Þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen hafa um árabil skemmt landanum með skemmtilegum ábreiðum og gríni. Eftir velgengni sýningarinnar Niflungahringurinn allur í Borgarleikhúsinu bættist í hópinn þegar dúettinn varð að tríói. Nýjasta viðbótin er leik- og söngkonan óviðjafnanlega Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Það verður mikið stuð og hlátur á þessum fyrstu Sumartónum.

Sumartónar í Salnum, sem hét áður Sumardjazz, hefur slegið hefur rækilega í gegn síðastliðin ár. Fjölbreyttar tónlistarupplifanir þar sem ýmsar tónlistarstefnur fá að njóta sín.

Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní kl. 17:00 og eru um klukkustundar langir.

Dagskrá Sumartóna:
4. júní – Hundur í óskilum
11. júní – LÓN
18. júní – Hildur Vala og synir
25. júní – Góss

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Léttar veitingar verða til sölu.

Sjáumst í sumarfíling í Salnum!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn

Sjá meira