Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir sópran, Johanna Gossner klarinett og Mercedes Bravo píanó flytja sönglög eftir Jóhann G. Jóhannsson, Franz Schubert, Lori Laitman og Arnold Schönberg. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Söngkonan og hljómsveitarstjórinn Ragnheiður Ingunn var valin Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023, Johanna Gossner er margverðlaunuð og hreppti nýverið stöðu klarinettleikara í Vínarfílharmóníunni og hin spænska Mercedes Bravo hefur komið fram á tónleikum víðsvegar í Evrópu. Leiðir þeirra þriggja lágu saman í meistaranámi við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi.
Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd.
Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.