20.nóv 2022 14:00 - 15:00

Leiðsögn um Geómetríu

Gerðarsafn

Reykjavík - París 1953 Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur

Æsa mun ræða samband sýninga og rannsókna og velta fyrir sér hvort femínískt endurlit geti varpað nýju sjónarhorni á íslensku geómetríuna.

Geómetría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.

Listamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir, Ásmundur Sveinsson, Benedikt Gunnarsson, Eiríkur Smith, Eyborg Guðmundsdóttir, Gerður Helgadóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur Benediktsson, Hafsteinn Austmann, Hjörleifur Sigurðsson, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Málfríður Konráðsdóttir, Nína Tryggvadóttir, Skarphéðinn Haraldsson, Svavar Guðnason, Sverrir Haraldsson, Vala Enard Hafstað, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.

Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Cecilie Gaihede.

Sýningarhönnun: Hreinn Bernharðsson & Studio Studio.

Bókin Abstrakt geómetría kom út á opnun sýningarinnar með megintextum eftir Ásdísi Ólafsdóttur og Sjón. Að útgáfunni stendur Knútur Bruun og er bókinni ritstýrt af Ólafi Kvaran, sem jafnframt skrifaði æviágrip listamannanna. Veröld er útgefandi bókarinnar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
mar
Bókasafn Kópavogs
28
mar
Gerðarsafn
29
mar
Salurinn
30
mar
Bókasafn Kópavogs
31
mar
Bókasafn Kópavogs
01
apr
Bókasafn Kópavogs
04
apr
Bókasafn Kópavogs
07
apr
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

28
mar
Gerðarsafn
08
apr
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira