Listamannaspjall með Elínu Hansdóttur, Haraldi Jónssyni og Margréti Bjarnadóttur í Gerðarsafni. Listamennirnir munu ræða verk sín á sýningunni Líkamleiki og leita tengsla á milli þeirra innbyrðis.
Sýningin Líkamleiki er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni eru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi.
Listamenn sýningarinnar eru Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvarsdóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guðmundsson, Steina, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason. Sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir.
Listamannaspjallið er hluti af viðburðadagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018.
Aðgangur á safnið gildir á viðburðinn.