Tilkynnt verður um handhafa Ljóðstafs Jóns úr Vör 2023 við hátíðlega athöfn í Salnum. Við sama tilefni verða veitt önnur verðlaun og viðurkenningar í Ljóðstaf Jóns úr Vör og ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs.
Skólakór Kársness flytur nýtt lag eftir Þóru Marteinsdóttur við ljóð Jóns úr Vör, samið sérstaklega fyrir athöfnina.
Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni.
Öll hjartanlega velkomin og aðgangur ókeypis.