23.jan 12:15

Menning á miðvikudögum | Söngleiðangur

Gerðarsafn

Söngleiðangur með Hrafnhildi Árnadóttur sópransöngkonu um sýninguna Ó, hve hljótt.

Söngleiðangur á sýningunni Ó, hve hljótt með Hrafnhildi Árnadóttur Hafstað sópransöngkonu, sem nýverið sló í gegn á vínartónleikum Sinfóníunnar. Hrafnhildur syngur óð til þeirra verka sem vekja hjá henni hughrif og hefst söngleiðangurinn hjá verki eftir Sigurð Guðjónsson með lagi eftir Poulenc. Við verk Doddu Maggýjar syngur Hrafnhildur grískt þjóðlag eftir óþekktan höfund og endar leiðangurinn á Draumalandi Sigfúsar Einarssonar fyrir framan verkið Hraun og mosi eftir Steinu.
Sýningin Ó, hve hljótt var fyrst sett upp í Verksmiðjunni á Hjalteyri 2018 og samanstendur af tíu samtíma kvikmynda- og vídeóverkum eftir íslenska og erlenda listamenn. Verkin gefa tækifæri til að rýna í hvernig  samruni tónlistar og kvikmynda geti stuðlað að sköpun nýstárlegra listaverka. Sýningarstjórar eru Pascale Cassagnau, CNAP og Gústav Geir Bollason.
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað stundaði tónlistarnám á Íslandi og í Hollandi, þaðan sem hún lauk prófi frá Hollensku óperuakademíunni árið 2015 með láði. Hún hefur sungið í fjölmörgum óperum í Hollandi og komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sinfóníuhljómsveitinni í Delft og Residentie Orkest. Hún var meðal sigurvegara í keppninni Ungir einleikarar haustið 2011 og söng í kjölfarið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn. Nýlega fór hún með hlutverk Violettu í La Traviata í frumlegri uppsetningu í Listasafni Reykjavíkur á Óperudögum og sló síðast í gegn á árlegum Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Leiðsögnin er liður í dagskránni Menning á miðvikudögum á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Héraðsskjalasafn og Salurinn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
09
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

10
maí
Bókasafn Kópavogs
10
maí
Bókasafn Kópavogs
10
maí
Gerðarsafn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
11
maí
Gerðarsafn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
16:00

Rauðhetta

11
maí
Salurinn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
24
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

10
maí
Gerðarsafn
11
maí
Gerðarsafn
11
maí
Menning í Kópavogi
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira