Sjálfsmildi | Foreldramorgunn

Anna Dóra Frostadóttir sálfræðingur mun fjalla um samkennd í eigin garð og mikilvægi þess að mæta sjálfum sér á erfiðum augnablikum með mildi, umhyggju og skilningi. Anna Dóra er sérfræðingur í klínískri sálfræði, félagsráðgjafi og núvitundarleiðbeinandi. Hún sinnir greiningu og almennri sálfræðimeðferð fullorðinna á stofu og leiðir hópnámskeið. Sérsvið hennar eru þunglyndi, kvíði og streita. […]
Together | Pólsk listsmiðja

Velkomin í fjöltyngda listsmiðju sem leiðir saman menningarheima í gegnum pólsku útklippiaðferðina Wycinanka! Í smiðjunni verður þátttakendum boðið að klippa út mynstur í anda pólskrar alþýðulistrar, wycinanka. Þátttakendur fá tækifæri til að fræðast um þessa aldagömlu handverksaðferð þar sem litríkur pappír er klipptur í mynstur sem ýmist sækja innblástur til náttúrunnar, geometríu eða mynda úr […]
Ævintýralandið

Spennandi og litrík fjölskyldustund þar sem við veltum fyrir okkur óendanlegum möguleikum pappírsins til sköpunar. Að smiðju lokinni verður hægt að taka djásnin með sér heim. Leiðbeinandi er Anna Henriksdóttir. Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Aðgangur á viðburði er ókeypis og öll velkomin.
Layali Fairuz | Nætur Fairuz

Líbanska söngkonan Fairuz er dýrkuð og dáð víða um heim og hefur hrifið hjörtu margra kynslóða í Miðausturlöndum með ljóðrænum textum og tímalausum melódíum. Á Vetrarhátíð fara fram tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem hrífandi tónlist Fairuz hljómar í flutningi einvala hóps tónlistarfólks og gestasöngvara en hljómsveitina skipa Thabit Lakh, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Alexandra […]
Ljóðaandrými | Innsetning

Í ljóðaandrýminu er hægt að setjast niður í amstri dagsins, slaka á og njóta þess að hlusta á upptökur af nærandi ljóðaupplestri nokkurra skálda í notalegu umhverfi. Skáldin sem um ræðir eru þau Ragnheiður Lárusdóttir, Ólafur Sveinn Jóhannesson, Hildur Kristín Thorstensen, Gunnhildur Þórðardóttir, Eyrún Ósk Jónsdóttir, Eygló Jónsdóttir og Anton Helgi Jónsson. Öll velkomin. Ragnheiður […]
Skáldin lesa | Ljóðastund á bókasafninu

Skáldin Draumey Aradóttir, Guðmundur S. Brynjólfsson, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir lesa upp úr bókum sínum á ljóðastund á bókasafninu í tengslum við daga ljóðsins. Öll velkomin. Léttar veitingar í boði Draumey Aradóttir er kennari, skáld og rithöfundur en hefur jafnframt lagt stund á heimspeki og lífspeki. Hún er „logophile“ – sú sem elskar […]
Vetrarhátíð

Fimmtudagur 1. febrúar Sundlaug KópavogsOpið til 22:00 18:00 – 18:30 Töframaðurinn Einar AronEinar Aron er einn yngsti töframaður landsins en hefur þrátt fyrir það komið víða við og skapað sér nafn sem eftirsóttur töframaður, bæði meðal barna og fullorðinna. 18:30 – 18:50 Skólahljómsveit KópavogsSprellfjörug lagasyrpa með lúðurþeyturum framtíðarinnar. 20:15 – 21:00 Sundballetthópurinn EilífðinÞátttökutími. Sundballethópurinn Eilífðin eru systurnar […]
Mitt er þitt og þitt er mitt

Nærandi og skemmtileg söngstund fyrir alla fjölskylduna með Ragnheiði Gröndal söngkonu og Guðmundi Péturssyni gítarleikara. Hér gefst börnum og fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa íslenska ljóð- og kveðskaparlist í gegnum tónlist, söng og sögur úr ólíkum áttum, lög og ljóð sem við þekkjum og eigum saman. Aðgangur á söngstundina er ókeypis og öll hjartanlega […]
Svefnvenjur barna | Foreldramorgunn

Arna Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í barnahjúkrun, fjallar um svefn barna frá fæðingu til tveggja ára aldurs. Arna leiðir foreldra inn í heim barnsins og skoðar bættar svefnvenjur og hvernig hægt er að leysa svefnvandamál barna. Foreldramorgunninn fer fram í Huldustofu á 3. hæð aðalsafns. Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til […]
Sýningarsalir lokaðir á efri hæð

Sýningarsalir á efri hæð safnsins eru lokaðir tímabundið þar sem verið er að taka niður sýninguna Skúlptúr/Skúlptúr. Sýningin Venjulegir Staðir opnar 13. janúar. Á sýningunni eru ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys og Tine Bek. Seinni fasi sýningarinnar, Venjulegar myndir, verður opnaður 10. febrúar þar sem sýnd verða verk […]
Páskaeggjalitun með ÞYKJÓ

Náttúran málar egg í fjölbreyttum litum – jafnvel felulitum.
Lífríki náttúrunnar

Í þessari smiðju munum við föndra litrík skordýr úr eggjabökkum, pípuhreinsurum og alls kyns glingri. Við heiðrum ríki skordýranna, það ríki sem er allt í kringum okkur og mun koma til með að spretta fram við vorjafndægur. Smiðjan hentar mjög vel fyrir börn og fjölskyldur. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm […]