14.maí 2026 ~ 17.maí 2026

Queer Situations 2026 – Bókmenntahátíð

Salurinn

Salurinn
2.750 - 8.250 kr.

Bókmenntahátíðin Queer Situations verður haldin í annað sinn dagana 14.-17. maí í Reykjavík og Kópavogi. Fjölbreyttir viðburðir ásamt rithöfundum, fræðafólki og listamönnum frá hinum ýmsum löndum setja svip sinn á hátíðina. Dagskrá verður auglýst síðar. Við hlökkum til að sjá ykkur!

Queer Situations er bókmenntahátíð sem leggur áherslu á hinsegin bókmenntir í fleiri en einum skilningi: Bækur höfunda sem skilgreina sig sem hinsegin en einnig bókmenntir sem falla út fyrir meginstrauminn (sem kannski er flæðandi). Queer Situations leggur ríka áherslu á að bjóða erlendum höfundum til landsins, til að brjóta upp og opna umræðu um hinsegin bókmenntir á Íslandi. Bókmenntum og umræðu af öllum toga til heilla.
Hátíðin var stofnuð í leit að nýju jafnvægi í bókmenntaumræðu og til þess að skapa olnbogarými fyrir bækur skrifaðar af hinsegin höfundum sem ekki skrifa í hefðbundin form. Hinsegin raddir hafa átt undir högg að sækja undanfarin misseri. Það er mikilvægt að hlúa vel að umgjörð í kringum þær, draga þær fram og hlusta. Á hátíðinni er lögð er áhersla á inngildingu og aðgengi. Markmiðið er að efla þátttöku og framlag hóps innan bókmenntanna sem á frekar aðgang að hljóðnemanum í öðru samhengi eða er dreginn fram til hátíðarbrigða.

Hátíðin byggir á alþjóðlegu samstarfi, sem og samstarfi við lykilstofnanir í íslensku lista- og bókmenntalífi. Þar má nefna Miðstöð íslenskra bókmennta, Reykjavíkurborg, Menning í Kópavogi (MeKó), Félag íslenskra bókaútgefanda og Örvar (styrktarsjóð á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra). Erlendir styrktaraðilar eru Norræni menningarsjóðurinn, Norsk-íslenski samstarfssjóðurinn, Dansk-íslenski samstarfssjóðurinn, Far lit (Bókmenntir frá Færeyjum) og Spænska sendiráðið.

———————————————–

The second edition of Queer Situations literary festival will take place from May 14-17 in Reykjavík and Kópavogur. The festival will feature diverse events and authors and artists from various countries. The program will be introduced shortly. We look forward to seeing you!

Queer Situations is a literary festival that focuses on queer literature in more than one sense: books by authors who identify as queer, as well as literature that falls outside the mainstream (which perhaps is constantly changing). Queer Situations puts emphasis on inviting foreign authors to the country, in order to open up the discussion about queer literature in Iceland. Queer voices have faced a serious backlash in recent years. It is important to take care of the setting around them, sharpen the focus, and listen.
The festival focuses on inclusion and accessibility. We aim to promote the participation and contribution of a group within literature that has limited access to the microphone in other contexts or is sometimes brought to the scene for decoration.

The festival is based on international cooperation, as well as cooperation with key institutions in Icelandic culture. These include the Icelandic Literature Center, the City of Reykjavík, Culture in Kópavogur (MeKó), Fíbút (The Icelandic Publishing Association) and Örvar (Fund of the Icelandic Ministry of Culture, Innovation and Higher Education). Foreign sponsors include Norsk-isländska samarbetsfonden (The Norweigan-Icelandic fund for cooperation), Fondet for Dansk-Islandsk Samarbejde (The Danish-Icelandic fund for cooperation), Far lit (Literature from the Faroe Island) and The Spanish Embassy.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
maí
Salurinn
02
maí
Bókasafn Kópavogs
02
maí
Bókasafn Kópavogs
02
maí
Náttúrusafn Kópavogs
12:00

Fjöruferð

03
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
04
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

01
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
09
maí
Salurinn
09
maí
Salurinn

Sjá meira