Guðbjörg R. Jóhannesdóttir ræðir við Gunndísi Ýr Finnbogadóttur og Þorgerði Ólafsdóttur um sýninguna og verkefnið Óstöðugt land, sunnudaginn 12. janúar kl. 15:00 í Gerðarsafni. Öll eru velkomin!
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir er heimspekingur og dósent við listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Umhverfisheimspeki hefur verið í forgrunni í verkum hennar frá því hún hóf nám í heimspeki við Háskóla Íslands. Hún lauk MA prófi í Values and the Environment frá Lancaster University árið 2006 og sneri svo aftur til Háskóla Íslands þaðan sem hún lauk doktorsverkefni um landslag og fagurferðilegt gildi árið 2015. Rannsóknir hennar beinast að umhverfisfagurfræði, umhverfissiðfræði, fyrirbærafræði, skynjaðri þekkingu, líkamleika, landslagi, þverfaglegu starfi og þátttöku. Hún hefur birt fjölda greina og bókarkafla og haldið erindi víða hérlendis og erlendis. Bók hennar Vá! Ritgerðir um fagurfræði náttúru kom út í lok árs 2020.
Sýningin Óstöðugt land byggir á samstarfi Gunndísar og Þorgerðar en þær hafa tekið viðtöl við einstaklinga sem ferðuðust til Surtseyjar á árunum 1963 – 2022 með fjölbreytt markmið og ólíkan tilgang. Viðtalsverkið grundvallast á örfyrirbærafræðilegum viðtölum (e. micro – phenomenological interviews) en sú aðferð gengur út á það að fá viðmælendur til að lýsa reynslu sinni af umhverfi Surtseyjar og varpa fram lýsandi mynd af upplifun sinni og minningar af fyrri (líkamlegri) reynslu.
Viðtölin voru tekin upp í Surtseyjarstofu á Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ), þar sem heimildarsafn Surtseyjarfélagsins er varðveitt ásamt ótal verðmætum steinasýnum frá eyjunni sjálfri frá upphafi eldgoss. Viðtölin mynda uppistöðuna í nýrri vídeóinnsetningu sem ber titilinn Óstöðugt land og eru skrásett með ýmsu móti, sem myndbandsupptökur, afritun í textaformi, gegnum hljóð og teikningar. Aðstoð við klippivinnu veitti Bjarni Þór Pétursson og klippivinna er í samstarfi við Hrafnkel Tuma Georgsson. Sýningastjórn Becky Forsythe.
Myndlistarmennirnir vilja þakka þátttakendum fyrir sitt framlag til Óstöðugs lands. Þau eru Anna Líndal, Birgir Vilhelm Óskarsson, Birna Lárusdóttir, Helgi Birkis Huginsson og Hildur Hákonardóttir.