Sögu- og söngvastund á foreldramorgni með Eyrúnu og Axel
Eyrún Ósk Jónsdóttir leikari og rithöfundur mun lesa stutta sögu fyrir börnin, þar sem hún leggur áherslu á skynjun og hvernig hægt er að vekja áhuga ungra barna á sögum og bókum.
Og Axel Ingi Árnason tónlistarmaður og forstöðumaður Salarins mun syngja nokkur lög fyrir krakkana og ræða mikilvægi tónlistar í uppeldi barna.
Það er mikilvægt að byrja strax að lesa og syngja fyrir börn.
Lestur og söngur styður við þroska og velferð barna og myndar mikilvægan grunn fyrir framtíðina.
Þægileg og notaleg stund fyrir fjölskyldur.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.