Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur stýrir skemmtilegri sögustund á 1. hæð aðalsafns. Sögustundin er opin öllum söguþyrstum krökkum sem vilja hverfa inn í heim ævintýranna.
Viðburðurinn er liður í afmælisdagskrá Bókasafns Kópavogs en safnið verður 70 ára þann 15. mars. Hlökkum til að sjá ykkur!