29.okt 13:11

Spunatónleikar í Górmánuði || 3/3

Salurinn

Þriðji hluti spunaþríleiks Davíðs Þórs sem mun spanna hálft ár
5.000 kr.

Tónskáldið, píanóleikarinn og þúsundþjalasmiðurinn Davíð Þór Jónsson er staðarlistamaður Salarins árið 2023. Davíð Þór mun af því tilefni bjóða upp á þrenna spunatónleika árið 2023 í Salnum sem teygja sig yfir hálft ár. Allir tónleikarnir fara fram á sunnudegi þegar sólin er hæst á lofti og þegar mánuðir eru við það að renna saman en saman mynda þeir eina heild. Fyrsti viðburðurinn fer fram á Alþjóðlega jazzdeginum 30. apríl, miðþáttur í ágústlok og tónleikaveislunni lýkur 29.október en saman munu þessir tónleikar mynda eina lífræna heild.

Hverjir og einar tónleikar einkennast af ævintýrum, forvitni og opnum huga þar sem tónlistarmaðurinn bregst við hljómi Salarins, andrúmslofti gesta, veðrabrigðum og árstíðabundnum sveiflum, hann sækir í tónlistararfleifð og uppsprettur, snýr út úr, fléttar áfram, tvinnar saman stefjum, hljómum og takti, splunkunýjum og eldgömlum. Báðir flyglar Salarins verða nýttir í óvissuferðinni, voldugir Steinway-flygill og Bösendorfer þar sem tónlistarmaðurinn leikur hvort tveggja á hljómborð þeirra og innviði.


Viðburðurinn tekur um tvær klukkustundir. Óhætt er að lofa geysispennandi óvissuferð um lendur tónlistarsögunnar.

Hægt er að kaupa áskrift á alla þrjá tónleika raðarinnar á 10.000 kr.

Dav­íð Þór er með­al fjöl­hæf­ustu tón­list­ar­manna lands­ins, jafn­víg­ur á pí­anó­leik, spuna, tón­smíð­ar og hljóm­sveit­ar­stjórn auk þess sem hann leik­ur á ógrynni hljóð­færa. Hann hef­ur leik­ið með flest­um tón­list­ar­mönn­um lands­ins og spil­að á tón­list­ar­há­tíð­um um all­an heim.

Dav­íð Þór hef­ur gert tónlist og hljóð­mynd­ir fyr­ir fjölda leik­sýn­inga. Hann hef­ur einnig tón­sett út­varps­leik­rit og sjón­varps­verk af ýmsu tagi auk þess að semja tónlist fyr­ir dans­verk.. Hann hef­ur einnig unn­ið náið með sviðslista­fólki og mynd­list­ar­mönn­um og mætti þar helst nefna Ragn­ar Kjart­ans­son, en sam­an hafa þeir skapað þrjú tón­list­ar- og mynd­bands­verk:­ Guð (Sorgin sigrar hamingjuna) frá 2007; The End, fram­lag Ís­lands á Fen­eyj­art­víær­ingn­um árið 2009 og Visitors frá 2012. Davíð Þór samdi tónlist við kvikmyndir Benedikts Erlingssonar, Hross í oss og Kona fer í stríð en fyrir þá tónlist hefur hann hlotið fjölda verðlauna, má þar nefna Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin og Aubagne-verðlaunin.


FRAM KOMA

Davíð Þór Jónsson

Spunameistari

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

14
sep
Salurinn
20:30

Himinn & jörð

14
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Tala og spila

14
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
13:00

Haustkórónur með ÞYKJÓ

16
sep
Bókasafn Kópavogs
13:00

Sófaspjall um andleg mál

17
sep
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

18
sep
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

18
sep
Bókasafn Kópavogs
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

18
sep
Gerðarsafn
12:15

Hljóðvefur um Hamskipti

21
sep
Bókasafn Kópavogs
13:00

Friðardúfur á friðardegi

07
okt
12
okt
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

04
nóv
09
nóv
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

29
nóv
30
nóv
Salurinn
20:00

Jazzkonur kynna, Jólajazz!

Sjá meira

Salurinn

14
sep
Salurinn
27
sep
Salurinn
28
sep
Salurinn
29
sep
Salurinn
29
sep
Salurinn
03
okt
Salurinn
05
okt
Salurinn
06
okt
Salurinn
29
nóv
30
nóv
Salurinn

Sjá meira