27.ágú 13:29

Spunatónleikar í Tvímánuði || 2/3

Salurinn

Annar hluti spunaþríleiks Davíðs Þórs sem mun spanna hálft ár.
5.000 kr

Stórfengleg óvissuferð með Davíð Þór Jónssyni, píanóleikara, tónskáldi og staðarlistamanni Salarins 2023.

Tónleikarnir eru liður í spunaflugi og þríleik Davíðs Þórs sem fram fara í Salnum á árinu. Fyrstu tónleikarnir, sem fóru fram í apríllok, fengu frábærar viðtökur og nú er komið að öðrum tónleikum. Ekki missa af einum fremsta tónlistarmanni Íslands í innblásnu flæði.

Á stundum fannst mér eins og ég stæði við hurð að hlusta í gegn til að greina hvaða verk væri verið að flytja en ásláttur Davíðs á hljóðfærið og úrklippulegar hendingar hans voru fáránlega vel útfærðar, ekki ósvipað collage myndverkum.

Davíð lék á báða flyglana í einu, geri aðrir betur, meira að segja reif hann sig úr jakkanum eftir fyrsta slottið til að eiga auðveldara með að ná á hægri pedal hvors flygils í einu. Þetta hef ég aldrei séð gert og hreint og beint skil ekki hvernig er hægt en heilahvel Davíðs Þórs hljóta að vera betur tengd en hjá öðru fólki.

ABÁ, Heimildin 2023

Davíð Þór Jónsson er staðarlistamaður Salarins 2023 og heldur af því tilefni þrenna spunatónleika á árinu. Allir tónleikarnir fara fram á sunnudegi þegar sólin er hæst á lofti og þegar mánuðir eru við það að renna saman. Fyrsti viðburðurinn fór fram á Alþjóðlega jazzdeginum 30. apríl, miðþáttur í ágústlok og tónleikaveislunni lýkur 29. október en saman munu þessir tónleikar mynda eina lífræna heild.

Hverjir og einar tónleikar einkennast af ævintýrum, forvitni og opnum huga þar sem tónlistarmaðurinn bregst við hljómi Salarins, andrúmslofti gesta, veðrabrigðum og árstíðabundnum sveiflum, hann sækir í tónlistararfleifð og uppsprettur, snýr út úr, fléttar áfram, tvinnar saman stefjum, hljómum og takti, splunkunýjum og eldgömlum. Báðir flyglar Salarins verða nýttir í óvissuferðinni, voldugir Steinway-flygill og Bösendorfer þar sem tónlistarmaðurinn leikur hvort tveggja á hljómborð þeirra og innviði.

Óhætt er að lofa geysispennandi óvissuferð um lendur tónlistarsögunnar.

Dav­íð Þór er með­al fjöl­hæf­ustu tón­list­ar­manna lands­ins, jafn­víg­ur á pí­anó­leik, spuna, tón­smíð­ar og hljóm­sveit­ar­stjórn auk þess sem hann leik­ur á ógrynni hljóð­færa. Hann hef­ur leik­ið með flest­um tón­list­ar­mönn­um lands­ins og spil­að á tón­list­ar­há­tíð­um um all­an heim.

Dav­íð Þór hef­ur gert tónlist og hljóð­mynd­ir fyr­ir fjölda leik­sýn­inga. Hann hef­ur einnig tón­sett út­varps­leik­rit og sjón­varps­verk af ýmsu tagi auk þess að semja tónlist fyr­ir dans­verk.. Hann hef­ur einnig unn­ið náið með sviðslista­fólki og mynd­list­ar­mönn­um og mætti þar helst nefna Ragn­ar Kjart­ans­son, en sam­an hafa þeir skapað þrjú tón­list­ar- og mynd­bands­verk:­ Guð (Sorgin sigrar hamingjuna) frá 2007; The End, fram­lag Ís­lands á Fen­eyj­art­víær­ingn­um árið 2009 og Visitors frá 2012. Davíð Þór samdi tónlist við kvikmyndir Benedikts Erlingssonar, Hross í oss og Kona fer í stríð en fyrir þá tónlist hefur hann hlotið fjölda verðlauna, má þar nefna Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin og Aubagne-verðlaunin.

FRAM KOMA

Davíð Þór Jónsson

Spunameistari

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
apr
Bókasafn Kópavogs
17
apr
Bókasafn Kópavogs
17
apr
Bókasafn Kópavogs
17
apr
Náttúrufræðistofa Kópavogs
18
apr
Bókasafn Kópavogs
18
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Holl fæða

19
apr
Salurinn
20:00

KLARA ELÍAS

20
apr
Gerðarsafn
21
apr
Salurinn
04
maí
Salurinn
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

18
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Holl fæða

19
apr
Salurinn
20:00

KLARA ELÍAS

21
apr
Salurinn
25
apr
Salurinn
28
apr
Salurinn
04
maí
Salurinn
12
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn
20:00

HILDUR

Sjá meira