Skólakórar Kársnesskóla, Hörðuvallaskóla og Smáraskóla frumflytja átta ný tónverk fyrir barnakóra í tilefni af 25 ára afmæli Salarins.
Verkin voru samin sérstaklega fyrir tilefnið að beiðni Salarins en tónskáldin eru Benedikt Hermann Hermannsson (Benni Hemm Hemm), Ingibjörg Fríða Helgadóttir & Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Nína Sólveig Andersen (Lúpína), Tryggvi M. Baldvinsson, Úlfur Eldjárn og Þóra Marteinsdóttir. Stjórnendur skólakóranna eru Álfheiður Björgvinsdóttir, Ása Valgerður Sigurðardóttir og Ásta Magnúsdóttir.
Hljómsveitina skipa Daði Birgisson á píanó, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar, Alexandra Kjeld á kontrabassa og Kristófer Rodriguez Svönuson á trommur og slagverk.
Verkefnið er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar, Barnamenningarsjóði og Tónlistarsjóði.