Tónleikaspjall í tali og tónum þar sem veitt verður innsýn í efnisskrá Tíbrártónleika dagsins. Viðburðurinn fer fram í fordyri Salarins og hefst klukkan 13 en umsjón með spjallinu hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Á Tíbrártónleikum dagsins mun Píanókvartettinn Negla flytja mögnuð kammerverk frá ólíkum heimum eftir Frank Bridge, Lee Hoiby og Antonin Dvorak.