Í dag, degi eftir að loftsteinn á stærð við strætisvagn þeyttist rétt fram hjá jörðinni var Náttúrufræðistofunni færður lítill loftsteinn að gjöf.
Steinninn fannst í Argentínu og er á stærð við eldspítustokk. Hann er að mestu úr járni og nikkel eins og algengt er um slíka steina. Gefandi er Helgi Ásmundsson. Loftsteinninn er málmgljáandi og mjög þungur miðað við stærð.
þá var stofunni einnig fært eggjasafn að gjöf frá Heiðari Erni Bernhardssyni. Í safninu er að finna egg um 20 tegunda íslenskra varpfugla. Þar á meðal eru egg sem ekki voru til í eggjasafni stofunnar og er jöfin því kærkomin viðbót við safnkostinn.
Egg auðnutittlings
Gefendum eru hér með færðar hinar bestu þakkir fyrir höfðingsskapinn.