Menningarhúsin bjóða upp á spennandi dagskrá í vetrarfríi grunnskólanna í Kópavogi.
Mánudagurinn 24. febrúar
Kort og kórónur á Bókasafninu kl. 11:00 – 13:00
Komdu og föndraðu kórónur og kort eða jafnvel bókamerki, og skreyttu með úrklippum úr gömlum bókum.
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Smiðjan verður haldin í Tilraunastofunni á fyrstu hæð safnsins.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands í Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 13:00
Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður hjá okkur í vetrarfríinu með lifandi og skemmtilega vísindasmiðju fyrir forvitin börn á öllum aldri. Markmið Vísindasmiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á vísindum með gagnvirkum og lifandi hætti, styðja við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda og miðla vísindalegri þekkingu til samfélagsins.
Þriðjudagur 25. febrúar
Grímusmiðja á Bókasafninu kl. 11:00 – 13:00
Komdu og búðu þér til grímu í vetrarfríinu!
Boðið verður upp á grímuföndur; glimmerlím, fjaðrir og alla heimsins liti til að lífga upp á vetrarfríið.
Smiðjan verður á 1. hæð Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu.
Allur efniviður og leiðbeiningar á borðum á staðnum.
Leikur að ljósi og litum I Listasmiðja í Gerðarsafni kl. 13:00 – 15:00
Komið að gera tilraunir með ljós og litaðar filmur og búum til listaverk úr öllum regnbogans litum! Jóhanna Ásgeirsdóttir verður með listsmiðju fyrir börn og fjölskyldur þeirra í vetrarfríi grunnskólanna þriðjudaginn 25. febrúar kl. 13:00 í Gerðarsafni. Efniviður verður á staðnum og þátttaka í smiðjunni er gestum að kostnaðarlausu. Hlökkum til að sjá ykkur!
Spilastuð fyrir ungmenni á Bókasafninu með Spilavinum kl. 14:00
Komdu að spila í vetrarfríinu!
Spilavinir kíkja í heimsókn í ungmennadeildina á 3. hæð með glás af spilum. Spilakennarar verða á staðnum, tilbúnir að leiðbeina þátttakendum.
Við hvetjum ykkur til þess að koma og eiga gæðastund hér í menningarhúsunum.