Myndlistarhópur Hlutverkaseturs er listhópur listahátíðarinnar Listar án landamæra árið 2023. Hópurinn mun opna sýninguna Fíflast með fíflum í menningarhúsunum 16. september.
Laugardaginn 2. september býður listhópurinn upp á skemmtilega viðburði og þátttökuverkefni sem hverfast meðal annars um fífilinn svo sem fíflakast, fíflakrítar, fíflaratleik og fíflalega málun á trönum.
Verið öll hjartanlega velkomin að fíflast með okkur.