24.feb 13:00 - 15:00

Felufélagar með ÞYKJÓ

Gerðarsafn

Hver kúrir undir steini? Hver svamlar þar í þaraskógi?

Í skuggaleikhússmiðjunni Felufélagar skapa fjölskyldur skuggabrúður innblásnar af dýrum sem fela sig í sjó og á landi. Fjölskyldur kynnast töfrum skuggaleikhúss og prófa að láta verur sínar ferðast um ólík vistkerfi í lok smiðjunnar.

Smiðjan er ætluð börnum frá 4 ára aldri í fylgd fullorðinna. Allur efniviður verður á staðnum og þátttaka er ókeypis.

ÞYKJÓ er þverfaglegt teymi hönnuða sem vinna fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði upplifunarhönnunar, innsetninga og vöruhönnunar. 

Hönnunarstarf þeirra miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í samstarfi við mennta- og menningarstofnanir. 

Á meðal nýlegra verkefna er innsetningin Hljóðhimnar í Hörpu, húsgagnalínurnar Kyrrðarrými og Hreiður og þátttökuverkefnið Gullplatan: Sendum tónlist út í geim!

ÞYKJÓ hefur verið tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands í tvígang, árið 2021 og 2022 og hlaut nýverið tilnefningu til alþjóðlegu YAM verðlaunanna.

Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Fjölskyldustundir á laugardögum sem er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

18
maí
Gerðarsafn

Together | Palestínsk útsaumssmiðja

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
maí
Gerðarsafn
18
maí
Gerðarsafn
21
maí
Bókasafn Kópavogs
21
maí
Bókasafn Kópavogs
22
maí
Bókasafn Kópavogs
22
maí
Bókasafn Kópavogs
24
maí
Salurinn
20:00

HILDUR

27
maí
01
jún
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
01
júl
06
júl
Bókasafn Kópavogs
12
ágú
17
ágú
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

18
maí
Gerðarsafn
18
maí
Gerðarsafn
02
jún
16
jún
Gerðarsafn
09
jún
Gerðarsafn
Heiðar Kári

Sjá meira