Falleg og skemmtileg fjölskylduskemmtun með áherslu á börn á aldrinum 4 til 9 ára. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Trúðavinkonurnar Silly Suzy og Momo eru jólabörn og hlakka ægilega mikið til hátíðarinnar. Silly Suzy hefur aldrei dvalið á Íslandi áður (hún er frá Clown Town í Bandaríkjunum) svo Momo vinkona hennar kennir henni hvernig skemmtilegast er að njóta saman aðventunnar á Íslandi.
Þær vinkonur bregða sér saman á skautasvell og búa til snjókall, skreyta allt hátt og lágt og baka piparkökur. Allt með hæfilegri blöndu af trúðalátum og prakkarastrikum, loftfimleikum og alveg geggjuðum jólalögum sem koma okkur öllum í sannkallað jólaskap.
Sýningin er á íslensku og ensku og stendur yfir í um hálftíma.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.