02.nóv 2025 20:00 ~ 25.apr 2026 22:00

Söngleikjastælar

Salurinn

Hægt er að kaupa miða á staka tónleika en við bendum á að áskriftarkort á alla þrenna tónleikana kostar aðeins 14.900 kr.
4.900 - 7.900 kr.

Vegna fjölda áskoranna munu Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún snúa aftur í Salinn með tónleikaröðina SÖNGLEIKJASTÆLA. Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.

Að þessu sinni verða þrennir tónleikar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið. 

2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög.

7. febrúar: Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með.

25. apríl: Sprengju-tónleikar með Söngleikjakórnum Viðlag. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRJÁ TÓNLEIKANA Á EINSTÖKU TILBOÐI


Sigga Eyrún og Bjarni Snæbjörnsson eru ástríðufullir söng-leikarar. Samstarf þeirra hófst á Reykjavík Pride árið 2008 með söngleikjaparinu Viggó og Víólettu. Síðan þá hafa þau lagt hjarta og sál í söngleikjaformið og skemmt landanum á sviðum leikhúsanna, á árshátíðum, í afmælum og víðar. Meðal söngleikja sem þau hafa tekið þátt í eru: Vesalingarnir, Mary Poppins, Kardemommubærinn, Sem á himni, Slá í gegn, Ronja Ræningjadóttir, Jesus Christ Superstar, Frost og Góðan daginn, faggi. 

Hljómsveitin er sem fyrr skipuð okkar fremsta tónlistarfólki:

Karl Olgeirsson: hljómsveitarstjóri spilar á píanó, hljómborð, harmonikku o.fl.
Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur/slagverk
Andri Ólafsson á bassa

Dagsetningar

02.nóv 2025

20:00 ~ 22:00

07.feb 2026

14:00 ~ 15:00

25.apr 2026

20:00 ~ 22:00

Deildu þessum viðburði

02
nóv
25
apr
Salurinn
07
feb
02
nóv
Salurinn
25
apr
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
21
des
Menning í Kópavogi
22
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
02
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

07
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
09
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

10
jan
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

11
jan
Salurinn
24
jan
Salurinn
01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

07
feb
02
nóv
Salurinn
19
feb
Salurinn
27
feb
Salurinn
01
mar
Salurinn

Sjá meira