06.ágú 2026 20:00

ÓÐUR TIL SÖNGLEIKSINS

Salurinn

Salurinn
Söngleikjaveisla þar sem flutt verða mörg af ástsælustu lögum söngleikjasögunnar!
5.900 kr.

Leikfélagið Fuglabjarg, skipað sviðslistakonunum Guðrúnu Ágústu Gunnarsdóttur, Katrínu Ýr Erlingsdóttur og Tinnu Margréti Hrafnkelsdóttur, heldur stórtónleikana Óður til söngleiksins í Salnum í Kópavogi þann 6. ágúst kl. 20:00. Þar sameina þær krafta sína með lifandi hljómsveit, bakröddum og dönsurum í meiriháttar söngleikjaveislu þar sem flutt verða mörg af ástsælustu lögum söngleikjasögunnar.

Á dagskránni má finna allt frá einlægum og tilfinningaþrungnum ballöðum yfir í kraftmikil hópatriði, meðal annars úr ástsælu söngleikjunum Vesalingunum, Litlu Hryllingsbúðinni og Hamilton. Með leiknum senum og húmor leiða söngkonurnar áhorfendur inn í töfraheim söngleikja og má þar finna brot úr verkum allt frá fyrri hluta 20. aldar til glænýrra verka.
Tónleikarnir eru fullkomin skemmtun fyrir söngleikjaunnendur en ekki síður fyrir þau sem vilja kynnast hinum dásamlega heim söngleikja sem er á miklu stökki í íslensku samfélagi í dag!

Hljómsveit:
Gítarleikari og hljómsveitarstjóri: Matthías Helgi Sigurðarson
Píanóleikari: Jon Ingvi Seljeseth
Bassaleikari: Albert Elías Linnet Arason
Trommuleikari: Þorsteinn Jónsson

Dansarar og kórmeðlimir:
Emil Agnar Sumarliðason
Hildur Kaldalóns Björnsdóttir
Sigurður Þorkell Vignir Ómarsson
Telma Ósk Bergþórsdóttir

Danshöfundur: Katrín Ýr Erlingsdóttir
Sviðshönnuður: Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir
Raddstýra: Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir

Deildu þessum viðburði

01
sep
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

11
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
20
sep
Salurinn
23
sep
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

25
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Gerðarsafn
28
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

11
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
18:30

GÁRUR

Sjá meira