Allri fjölskyldunni er boðið að njóta notalegrar jólasöngstundar með Ragnheiði Gröndal á Bókasafni Kópavogs.
Á dagskránni verða falleg og kunnugleg jólalög og gestir eru hvattir til að taka undir og syngja með. Komið og eigið góða stund saman og fangið jólaandann, þegar aðeins vika er til jóla.
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.



















