Fjörkálfarnir Gunni og Felix mæta á sviðið við jólatréð í Smáralind og bjóða upp á skemmtilega stund fyrir alla fjölskylduna kl. 14:00 og 15:00 laugardaginn 12. desember 2026.
Þeir félagar eru komnir í jólaskap og ætla að syngja og skemmta gestum eins og þeim einum er lagið. Tilvalið tækifæri fyrir börn og fullorðna til að staldra við, taka undir í söngnum og njóta jólastemningarinnar saman.
Viðburðurinn er hluti af Jólavogi, jóladagskrá Kópavogsbæjar, og er öllum opinn.
Verið hjartanlega velkomin!
























