Á sviðinu við jólatréð í Smáralind
5. desember kl. 14:00 og 15:00
Íslenski dansflokkurinn færir okkur brot úr Jóladraumum, ævintýralegri jólasýningu fyrir alla fjölskylduna.
Í sýningunni fylgjumst við með ungri stúlku sem leggur af stað í leit að hinum dularfulla jólaanda. Á leiðinni kynnist hún furðulegum og skemmtilegum verum, meðal annars fúlum jólaketti, hræddum héra og illa lyktandi skötu!
Falleg og fjörug dansstund þar sem töfrar jólanna fá að njóta sín.
Viðburðurinn er hluti af Jólavogi, jóladagskrá Kópavogsbæjar, og er öllum opinn.
Verið öll hjartanlega velkomin!
























