Við jólatréð í Smáralind
19. desember kl. 14:00 og 15:00
Listafólkið í Pilkington Props býður upp á glænýja jólasirkussýningu sem nær nýjum hæðum: Jólasveinarnir Giljagaur og Gluggagægir koma í heimsókn og sýna nýja leynda hæfileika sína við að skreyta jólatré á óvæntan hátt!
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna í miðjum jólaundirbúningnum.
Viðburðurinn er hluti af Jólavogi, jóladagskrá Kópavogsbæjar, og er öllum opinn.
Verið öll hjartanlega velkomin!
























