Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanisti standa fyrir stofutónleikum í Melaheiði 5 í Kópavogi þann 5. júlí nk. í samstarfi við Kópavogsbæ.
Hið glæsilega hús í Melaheiði reistu Þorkell og kona hans Barbara á 7. áratugnum. Mist Þorkelsdóttir, dóttir þeirra hjóna, tók ásamt manninum sínum við húsinu með það fyrir augum að fylla það tónlist og menningu.
Hildigunnur og Guðrún munu flytja Níu ljóð úr Þorpinu sem Þorkell samdi við ljóð Jóns úr Vör. Það eru örfá sæti í boði. Sendið netpóst á hildein@gmail.com fyrir miðapantanir.
Miðaverð er 3500 kr. og enginn posi á staðnum.
Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.