03.feb 19:00 - 20:30

Bræðurnir frá Kópavogsbúinu

Héraðsskjalasafn Kópavogs

Kvikmyndasýning á Safnanótt.

Nýleg kvikmynd Marteins Sigurgeirssonar verður sýnd í Héraðsskjalasafni á Safnanótt.

Bræðurnir frá Kópavogsbúinu byggir á viðtali Marteins við bræðurna Magnús, Einar og Guðmund Óskarssyni, frumbyggja í Kópavogi en fjölskylda þeirra settist að í Kópavogi árið 1930 þar sem faðir þeirra Óskar Eggertsson starfaði sem bústjóri að Kópavogsbúinu.

Myndin dregur upp lifandi mynd af æskuheimi bræðranna og lífinu í strjálbýlum Kópavogi fyrir margt löngu. Þar tóku þeir bræður þátt í almennum sveitastörfum og sóttu skóla í Reykjavík. Þeir áttu eftir að láta til sín taka á sviði íþrótta, stofnuðu íþróttafélagið Fálkar, tóku þátt í  stjórnarstörfum á upphafsárum Breiðabliks og voru virkir í skátastafi ásamt því að reka nýlenduvöruverslun við Hafnafjarðarveg í samstarfi við föður sinn.

Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

——————–

Dagskráin í Héraðsskjalasafni á Safnanótt er sem hér segir:

Húsið opnar kl 18

19:00-20:00
Kvikmynd Marteins Sigurgeirssonar „Bræðurnir frá Kópavogsbúinu“

21:00-22:20
Kvikmynd Marteins Sigurgeirssonar Saga knattspyrnudeilda Breiðabliks.

Dagskrá lokið klukkan 23:00

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

21
ágú
Bókasafn Kópavogs
21
ágú
Gerðarsafn
22
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

25
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
28
ágú
Salurinn
26
ágú
Salurinn
26
ágú
Salurinn
27
ágú
Bókasafn Kópavogs
11
okt
12
okt
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn

Sjá meira