27.sep 2024 20:00 - 22:00

Draumur að vera með dáta

Salurinn

Salurinn
7.500 kr.

Ragnheiður Gröndal og Árabátarnir flytja lög sem allir þekkja frá miðbiki síðustu aldar. Um er að ræða hin svokölluðu stríðsáralög sem upphaflega voru sungin af dægurlagasöngkonum þess tíma. Má þar nefna Ingibjörgu Smith, Erlu Þorsteins, Elly Vilhjálms, Ingibjörgu Þorbergs, Hallbjörgu Bjarnadóttur, Öddu Örnólfs og Soffíu Karls. Þessi dagskrá var frumflutt á Jazzhátíð Garðabæjar nú í vor fyrir troðfullu húsi og nú gefst gestum Salarins tækifæri til að sjá, heyra og upplifa.

Ragnheiður Gröndal túlkar hinar sígildu perlur með sinni tímalausu rödd og nýtur stuðnings einvala hljóðfæraleikara sem einnig munu láta ljós sitt skína. Þá fá áhugaverðir sögumolar að fljóta með í dagskránni og húmorinn verður ekki langt undan. Tónleikagestum verður boðið í tímavél í formi tónlistar þessa einstöku kvöldstund með Ragnheiði og Árabátunum.

Árabátarnir eru þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Haukur Gröndal á tréblásturshljóðfæri, Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur.

Deildu þessum viðburði

01
sep
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

11
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
20
sep
Salurinn
23
sep
Salurinn
04
okt
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

29
ágú
Gerðarsafn
01
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Salurinn
02
sep
Bókasafn Kópavogs
02
sep
Náttúrusafn Kópavogs
10
sep
19
sep
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

01
sep
Salurinn
03
sep
Bókasafn Kópavogs
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

11
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
13
sep
19
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
18:30

GÁRUR

Sjá meira