29.sep 2024 13:13

Garún, Garún

Salurinn

John Speight heiðraður.

CAPUT flytur tvö mögnuð verk úr smiðju tónskáldsins John Speight. Í hlutverkum sögumanns og einsöngvara eru Arnar Jónsson, leikari og Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran.

John Speight (f. 1945) hefur fyrir margt löngu skipað sér í röð helstu tónskálda Íslands og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir tónlist sína auk þess að hafa starfað sem eftirsóttur óperusöngvari og söngkennari. Höfundarverk hans er fjölbreytt og spannar breitt tilfinningalitróf, allt frá voldugum hljómsveitarverkum til lágstemmdra einleiksverka og ljóðrænna einsöngslaga.  Á þessum tónleikum hljóma tvö stór og leikræn kammerverk sem hvort um sig byggja á dramatískum efniviði, hinni magnþrungnu draugasögu um Djáknann á Myrká og Klukkukvæði Hannesar Péturssonar þar sem klausturklukka frá miðöldum ávarpar ferðalang um bjarta sumarnótt.

CAPUT hefur starfað óslitið frá árinu 1987 og átt í gjöfulu samstarfi við tónskáld samtímans. Hópurinn er síbreytilegur að stærð og lögun, allt eftir viðfangsefninu hverju sinni. CAPUT er margverðlaunaður fyrir ómetanlegt framlag sitt til tónlistar og hlaut meðal annars Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2011.

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall sem hefst klukkan 12:30. Aðgangur á tónleikaspjallið er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Efnisskrá

Klukkukvæði (1988) við ljóð Hannesar Péturssonar
fyrir mezzósópran, klarinett, fagott, trompett, básúnu, þrjú slagverk, fiðlu og selló

Djákninn á Myrká (1988) fyrir sögumann/söngvara, flautu, klarinett, bassaklarinett, horn, slagverk, píanó, fiðlu, víólu og selló.

Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

01
mar
Salurinn
12
apr
Salurinn
03
maí
Salurinn

Sjá meira

19
feb
Salurinn
27
feb
Salurinn
05
mar
Salurinn
11
mar
Salurinn
20:00

Til Manuelu

12
mar
Salurinn
14
mar
Salurinn
15
mar
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
06
feb
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

06
feb
06
feb
Salurinn
06
feb
Salurinn
06
feb
Salurinn
07
feb
02
nóv
Salurinn
15
feb
Salurinn
19
feb
Salurinn
25
feb
Salurinn
27
feb
Salurinn

Sjá meira