13.nóv 12:15 - 13:00

Gunndís Ýr og Þorgerður | Menning á miðvikudögum

Gerðarsafn

Verið velkomin á leiðsögn listamanna um Óstöðugt land með Gunndísi Ýr Finnbogadóttur og Þorgerði Ólafsdóttur miðvikudaginn 13. nóvember kl. 12.15. Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin.

Óstöðugt land er sýningarverkefni og listrannsókn Gunndísar Ýrar Finnbogadóttur og Þorgerðar Ólafsdóttur sem byggir á viðtölum við einstaklinga sem hafa ferðast til Surtseyjar.

Sýningin Óstöðugt land byggir á samstarfi Gunndísar og Þorgerðar en þær hafa tekið viðtöl við einstaklinga sem ferðuðust til Surtseyjar á árunum 1963 – 2022 með fjölbreytt markmið og ólíkan tilgang. Viðtalsverkið grundvallast á örfyrirbærafræðilegum viðtölum (e. micro – phenomenological interviews) en sú aðferð gengur út á það að fá viðmælendur til að lýsa reynslu sinni af umhverfi Surtseyjar og varpa fram lýsandi mynd af upplifun sinni og minningar af fyrri (líkamlegri) reynslu.

Viðtölin voru tekin upp í Surtseyjarstofu á Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ), þar sem heimildarsafn Surtseyjarfélagsins er varðveitt ásamt ótal verðmætum steinasýnum frá eyjunni sjálfri frá upphafi eldgoss. Viðtölin mynda uppistöðuna í nýrri vídeóinnsetningu sem ber titilinn Óstöðugt land og eru skrásett með ýmsu móti, sem myndbandsupptökur, afritun í textaformi, gegnum hljóð og teikningar. Upptaka viðtalanna var í umsjón Bjarna Þórs Péturssonar og klippivinna er í samstarfi við Hrafnkel Tuma Georgsson. Sýningastjóri er Becky Forsythe.

Gunndís Ýr Finnbogadóttir býr og starfar á Íslandi. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Piet Zwart Institute og Plymouth University árið 2008, BA gráðu í myndlist frá Willem de Kooning Academie árið 2006 og M.Art.Ed. gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2011. Gunndís er dósent við listkennsludeild Listaháskóla Íslands og vinnur einnig að langtímaverkefni sem er hluti af doktorsnámi hennar við Háskóla Íslands og snýst um að skoða tengsl hreyfinga líkamans (með áherslu á göngu), umhverfis og hugsunar.

Þorgerður Ólafsdóttir útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Glasgow School of Art (2013) og hlaut BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands (2009). Myndlistarverk Þorgerðar byggjast á rannsóknum, vettvangsferðum, ferli og úrvinnslu. Í verkum sínum hefur hún áhuga á atburðum og hlutum sem ýta við skilningi okkar og sambandi við náttúruna í síbreytilegri veröld. Þorgerður er þátttakandi í alþjóðlega rannsóknarverkefninu Relics of Nature, an Archaeology of Natural Heritage in the High North (2021–2025). Sumarið 2021 hlaut hún rannsóknarleyfi til Surtseyjar vegna myndlistarverkefnis. Bók hennar Esseyja / Island Fiction kom út þann 14. nóvember 2023, á 60 ára gosafmæli Surtseyjar.

Hádegisleiðsögnin er liður í viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum sem er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

14
maí
Gerðarsafn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
09
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

10
maí
Bókasafn Kópavogs
10
maí
Bókasafn Kópavogs
10
maí
Gerðarsafn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
11
maí
Gerðarsafn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
16:00

Rauðhetta

11
maí
Salurinn
11
maí
Bókasafn Kópavogs
24
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

10
maí
Gerðarsafn
11
maí
Gerðarsafn
11
maí
Menning í Kópavogi
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira