Hannyrðaklúbburinn Kaðlín prjónar til góðs. Allt handavinnufólk velkomið að taka þátt og prjóna flík sem gefin verður góðum málstað.
Viðburðurinn er liður í afmælisdagskrá Bókasafns Kópavogs en safnið verður 70 ára þann 15. mars. Hlökkum til að sjá ykkur!
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og allir velkomnir!
Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is
Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.