01.mar 2026 13:30

Hugleiðingar um jökulvatn og ást

Salurinn

Salurinn
3.900 - 4500 kr.

„Hugleiðingar um jökulvatn og ást“ er lagaflokkur eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson, byggður á ljóðabók Ingunnar Snædal, „Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást“ frá árinu 2006.

Í þremur sms-ljóðum, sem eru vistuð en ekki send, lýsir ung stúlka tilfinningum sínum til annarrar stúlku. Henni er fylgt eftir í hversdagsleikanum, þar sem segir frá ýmsu; dauða ömmu, fjölskyldunni, ástarsambandi í dauðateygjunum og sögum frá heimahögunum. Allt kallast á við hina nýju, forboðnu, ást.

Ljóð Ingunnar eru einföld en jafnframt margslungin, nokkurs konar sjálfsævisaga og ferðalag. Ljóðmælandi er á leiðinni austur á land með systkinum sínum að jarðarför ömmu þeirra. Á ferðalaginu kynnumst við fjölskyldu sögukonunnar; kostum hennar, göllum og leyndarmálum. Dregin er upp mynd af fjölskyldu í sveit og gert góðlátlegt grín að náunganum í leiðinni.

Samtímis upplifum við innra ferðalag ljóðmælandans sem hræðist mjög að segja sínum nánustu frá leyndarmáli sínu, forboðinni ást, og vill alls ekki rugga bátnum og eyðileggja hugsanlega viðkvæmt jafnvægi fjölskyldunnar.

„Hugleiðingarnar“ voru upphaflega samdar fyrir Dúplum dúó þeirrar Bjarkar Níelsdóttur, söngkonu, og Þóru Margrétar Sveinsdóttur, víóluleikara. Þær frumfluttu verkið á Sumartónleikum í Skálholti í júlí 2022. Verkið er nú umskrifað og stækkað með aðkomu hljóðfæraleikara úr Caput en Dúplum verður í aðalhlutverki og leiðir framvindu verksins.

Dúplum dúó hefur verið starfandi síðan 2017 og skipa þær Björk Níelsdóttur, söngkonu og Þóru Margréti Sveinsdóttur, víóluleikara. Dúplum starfar bæði á Íslandi og í Hollandi þar sem þær hafa veg of vanda af því að flytja íslenska tónlist. Þær kynntust í Tónlistarháskólanum í Amsterdam og eftir að hafa í sitthvoru lagi farið á tónleikaferðalag með fjöldamörgum hjómsveitum m.a. Björk, Sigurrós, Florence and the Machine og Stargaze ákváðu þær að sameina krafta sína.

Dúplum dúó leggur áherslur á nútímaljóðlist og nútímaflutning á ljóðasöng. Þær notast einungis við söngrödd og víólu vekja þannig einfalda og óslípaða nánd með flutningi sínum.

Dúplum hefur komið fram á mörgum af helstu tónlistarhátíðum í Hollandi og á Íslandi: s.s. Wonderfeel, November Music, Wavelenght, Myrkum Músíkdögum og Sumartónleikum í Skálholti. Fjallað var um þær í útvarpsþættinum Unclassified á BBC3 eftir tónleika þeirra á Myrkum Músíkdögum 2019. Þær hlutu styrk úr Menningarsjóði Amsterdam vorið 2020 fyrir verkefnið ‘Flowers of Evil’ sem frumflutt var á helstu streymisveitum í Hollandi.

Þær fengu styrk frá Hljóðritasjóði og Upptökusjóði STEFS á síðasta ári og var þeirra fyrsta smáskífa gefin út í desember árið 2020. Hægt er að hlusta á tóndæmi af plötunnni hér.

Dúplum dúó vill gefa áheyrendum innsýn í heim söngljóðalistarinnar og hvernig hún er túlkuð í dag. Dúplum leitast við að draga fram það hráa og viðkvæma í tónlistinni með túlkun sinni og hljóðfæraskipan þar sem bæði rödd og víóla eru jafn réttháar. Dúplum frumsýndi nýverið sitt fyrsta tónlistarmyndband sem sjá má hér.

CAPUT hefur talsverða sérstöðu í íslensku tónlistarlífi; var formlega stofnað árið 1988 og hefur frá upphafi sérhæft sig í flutningi samtímatónlistar.  Fjölmörg íslensk tónskáld hafa skrifað verk fyrir Caput og hópurinn flutt og hljóðritað mörg meistarastykki eldri tónskálda en einnig frumsmíðar yngstu tónhöfunda. 

CAPUT hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífi Norðurlandanna og Evrópu, farið í margar tónleikaferðir og hljóðritað verk Norrænna og Evrópskra tónskálda.  Einnig hefur hópurinn farið í tónleikaferðir til Japan, Kína, Bandaríkjanna og Canada og ávalt flutt verk íslenskra tónskálda í bland við verk alþjóðlegra samtímatónskálda. 

CAPUT er gjarnan talið meðal helstu flytjenda samtímatónlistar í Evrópu og hefur sem Íslenskur hópur, haft það að leiðarljósi að kynna Íslenska tónlist á alþjóða vettvangi.  Hópurinn hefur tekið þátt í fjölda Norrænna og alþjóðlegra samstarfsverkefna, komið fram á tónlistarhátíðum s.s. Holland Festival, Gulbenkian Festival, Warsjárhaustinu og fl.  og hljóðritað tónlist fyrir mörg alþjóðleg útgáfufyrirtæki, þ.á.m. BIS, Naxos, Deutsche Grammophon og Sono Luminus. 

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.

Deildu þessum viðburði

04
jún
01
sep
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

14
okt
Salurinn
25
nóv
Salurinn
20
jan
Salurinn
24
feb
Salurinn
10
mar
Salurinn
20:00

Tileinkun

14
apr
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi
18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
jún
Salurinn
23
jún
Menning í Kópavogi
23
jún
Bókasafn Kópavogs
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

18
jún
Salurinn
21
jún
Salurinn
25
jún
Salurinn
10
ágú
16
ágú
Salurinn
23
ágú
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

17
sep
Salurinn
20:30

Halli & Gói

01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

04
okt
Salurinn

Sjá meira