02.mar 2025 16:00

The Icelandic POP Orchestra – The Road to Abbey

Salurinn

Salurinn
4.250 - 4.990 kr.

The Icelandic Pop Orchestra verður á fjölum Salarins sunnudaginn 2. mars 2025. Þar flytur hljómsveitin sína eigin tónlist sem sprottin er úr sameiginlegum reynslubrunni, allt frá sjötta tug síðustu aldar.


Flestir félagar hljómsveitarinnar eru fyrir löngu að góðu kunnir. Flestir þekkja gítarleikarana Björn Thoroddsen og Tryggva Hübner sem þekkja alla hljóma gítarsins, hljómborðsleikararnir Pétur Hjaltested og Þórir Baldursson kunna meira en vel á Steinway og Hammond, og Jón Kristinn Cortez á bassa og Þorsteinn Gunnarsson á trommur, þessir nefndir sjá um undirliggjandi drifkraft.
Íris Sveinsdóttir, Lýður Árnason, Jón Rósmann og Þorvaldur Gylfason sjá um sönginn með hljómfagurri aðstoð Dagnýjar Hængsdóttur, Ástu Hrannar Ásgeirsdóttur og Agnesar Sólmundsdóttur. Einnig mæta gestasöngvarar á svið sem verður getið síðar.
Sviðsstjórnandi verður svo Vignir Jóhannsson, sérlegur listhönnuður hljómsveitarinnar.

Í maí 2024 fór hljómsveitin til hins víðfræga hljóðvers; Abbey Road Studio 2 í London, þar sem Bítlarnir tóku upp megnið af sinni tónlist. Með í farteskinu voru lög eftir hljómsveitarmeðlimi og voru þau hljóðrituð í þeim anda sem hljóðverið bauð upp á. Er óhætt að segja að menn og konur hafi sett hljóða um stund er inn var komið; hátt til lofts, vítt til veggja og Bítlaandinn alltumlykjandi. Var sem félagarnir bundust sterkari böndum þegar fyrstu tónarnir fóru ofan í hljóðnemana. Afrakstur þessarar ferðar mun hljóma í eyrum þeirra sem mæta á tónleikana.

Deildu þessum viðburði

04
okt
Salurinn
11
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

29
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

01
okt
Bókasafn Kópavogs
01
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

04
okt
Salurinn
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
15
okt
Salurinn
16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira