03.feb 2023 18:00 ~ 04.feb 2023 23:00

Tillit | Ljóslistaverk fyrir Kópavogskirkju

Menning í Kópavogi

Kópavogskirkja
Nýju vídeóverki eftir Þórönnu Björnsdóttur varpað á Kópavogskirkju á Vetrarhátíð í Kópavogi.

Nýju vídeóverki eftir Þórönnu Björnsdóttur verður varpað á austurhlið Kópavogskirkju á Vetrarhátíð frá 18 – 23, föstudagskvöldið 3. febrúar og laugardagskvöldið 4. febrúar.

Vídeóverk Þórönnu er í samtali við dulspekilega myndlist Gerðar Helgadóttur og hið alsjáandi auga sem finna má í nokkrum listaverkum Gerðar, meðal annars í tillögum að altaristöflu fyrir Kópavogskirkju. Þóranna vinnur í verki sínu úr nýjum upptökum af augum og augnatilliti tæplega hundrað Kópavogsbúa. Augun, kvik, spurul, leitandi, snörp og alsjáandi munu leika um útvegg kirkjunnar á Vetrarhátíð í draumkenndu og hugvíkkandi verki sem minna á óravíddir hugans og hins innra lífs. Listamaðurinn Vikram Pradhan aðstoðaði við gerð verksins.

Inni í rökkvaðri Kópavogskirkju mun hljóðverk Þórönnu, Altarishljóð fyrir Kópavogskirkju, hljóma á klukkutímafresti kl. 18.30, 19.30, 20.30, 21.30 og 22.30, föstudagskvöldið 3. febrúar, á Safnanótt. Verkið er um fimmtán mínútur í flutningi.

Altarishljóð fyrir Kópavogskirkju voru samin að beiðni Salarins í Kópavogi og frumflutt á tónleikunum Óður til Kópavogs sem fram fóru í maí 2022.Altarishljóð eru hversdagsleg hljóð sem Þóranna fann í umhverfi Kópavogs. Innblásin af ýmsu úr sögu bæjarins og menningu mótaði hún úr hljóðupptökum hljóð – og tónvefnað og aðlagaði að hljómburði Kópavogskirkju. Með verkinu vill Þóranna tengjast kyrrð hússins og vera í samspili við hljóðlát skilaboð þeirra töfrandi listaverka sem í kirkjunni eru er túlka kristna trúarheimspeki og lyfta huganum til andlegra hugleiðinga.

Sérstakar þakkir fá Páll Einarsson, hljóðmaður, Hannes Sigurgeirsson kirkjuvörður, Álfheiður Björgvinsdóttir og Skólakór Kársnesskóla.



Dagsetningar

03.feb 2023

18:00 ~ 23:00

04.feb 2023

18:00 ~ 23:00

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
nóv
25
apr
Salurinn
08
nóv
Bókasafn Kópavogs
08
nóv
Bókasafn Kópavogs
08
nóv
Náttúrufræðistofa Kópavogs
09
nóv
Gerðarsafn
10
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

12
nóv
25
jan
Gerðarsafn

Sjá meira