Erindi númer tvö í erindaröð um umhverfismál, litið til framtíðar

Þann 19. maí mun Einar Jónsson, sviðsstjóri stefnumótunar og þróunar hjá skipulagsstofnun, flytja erindi númer tvö í erindaröð Náttúrufræðistofu og Bókasafns Kópavogs um umhverfismál. Erindið nefnist „Landsskipulagsstefna, nýtt ferli sem setur umgjörð um skipulagsmál á landsvísu.“ Þar er um að ræða heildstæða skipulagsstefnu fyrir Ísland sem tekur til margra ólíkra þátta landnýtingar eins og vegagerðar, þéttbýlismyndunar, sumarhúsabyggðar, fiskræktar í ám og við strendur o.m.fl. Landsskipulagið nær nefnilega frá fjöllum til grunnsævis, fjarða og voga.
20160518090232214622.jpg
Alþingi samþykkti 16. mars sl. þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2015-2026. Samþykkt hennar markar ákveðin tímamót í skipulagsmálum hér á landi. Með henni er í fyrsta sinn sett fram heildstæð stefna á landsvísu um skipulagsmál. Stefnan varðar byggðaþróun í þéttbýli og dreifbýli, auk skipulagsmála á miðhálendinu. Þá er einnig vikið að skipulagsmálum haf- og strandsvæða.
Í landsskipulagsstefnu eru sett fram sjónarmið og áherslur í skipulagsmálum, til útfærslu í skipulagsáætlunum sveitarfélaga. Þar útfæra sveitarstjórnir hvernig þær telja best við eiga að vinna úr stefnunni innan sinnar lögsögu og í samvinnu við önnur sveitarfélög þegar þannig háttar.
Landsskipulagsstefna getur einnig haft áhrif á áætlanir stjórnvalda á landsvísu í málaflokkum sem varða landnotkun og byggðaþróun. Gert er ráð fyrir að við mótun slíkra áætlana ríkisins sé horft til þeirra áherslna sem settar eru fram í landsskipulagsstefnu. Það getur átt við áætlanir eins og byggðaáætlun, kerfisáætlun, rammaáætlun og samgönguáætlun, svo dæmi séu tekin. Auk þess að vera framfylgt í gegnum skipulagsáætlanir sveitarfélaga og áætlanagerð ríkisins, felur landsskipulagsstefna einnig í sér tiltekin verkefni, svo sem leiðbeiningar- og þróunarverkefni, til að hrinda tilteknum markmiðum stefnunnar í framkvæmd.
Við mótun landsskipulagsstefnu hefur verið lögð rík áhersla á opið samráðsferli og gegnsæi, til að stuðla að sem breiðastri samstöðu um inntak hennar og áherslur. Í kynningunni verður farið yfir ferlið við mótun stefnunnar og þann lærdóm sem hægt er að draga af því. Einnig verður vikið að framfylgd stefnunnar og fyrirliggjandi verkefnum á næstu misserum í tengslum við landsskipulagsstefnu.
Fyrirlesturinn fer fram á 1. hæð safnahússins og eru allir velkomnir.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

30
des
Salurinn
03
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

04
jan
Bókasafn Kópavogs
06
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Náttúrufræðistofa Kópavogs
16:15

Tunglið

09
jan
Salurinn
09
jan
Bókasafn Kópavogs
10
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira