Sumarnámskeið fyrir krakka hefur verið fastur liður í starfsemi stofunnar og verður næsta námseið, sem haldið verður daganna 11.–15. júní hið tuttugasta í röðinni.
Námskeiðin eru ætluð fyrir 10–12 ára krakka í þeim tilgangi að kynna krakkana fyrir því sem finna má í nærumhverfi þeirra og gefa þeim jafnframt innsýn í vísindaleg vinnubrögð. Að venju mæta krakkarnir kl. 10:00 vel gallaðir og nestaðir en námskeiðið stendur alla jafna til kl. 15:00.
Farið verður til sýnatöku í náttúrunni og þær lífverur sem fyrir augu ber verða greindar og skoðaðar á rannsóknastofu.
Haldin verður nákvæm dagbók að sið vísindamanna.
Nánar um námskeiðið og skráning