Viltu taka þátt í alþjóðlegum listviðburði? Markmið hans er að nýta sköpun sem verkfæri til framþróunar samfélagsins, stuðla að inngildingu og auka á sýnileika jaðarhópa. Þátttaka krefst engrar sérþekkingar eða kunnáttu, einungis áhuga á að vera með og hafa áhrif.
Kópavogur auglýsir eftir þátttakendum úr hópi íbúa í verkefnið Elegía delle cose perdute. Um er að ræða samfélagsverkefni sem er opið öllum á Íslandi og leggur áherslu á flóttafólk og hælisleitendur.
Þátttaka felst í því að mæta á vinnustofur þar sem listafólk leiðir vinnu með þátttakendum. Afrakstur verður sýndur á sérstökum viðburði í Gerðarsafni á Vetrarhátíð og í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið meko@kopavogur.is
Hvað felst í þátttöku?
- 31. jan, 1. feb, 6. feb, 8. feb, 10. feb – Vinnustofur og lokaæfing í SBK húsinu í Gróf við Duus safnahús frá kl. 14:00-16:00
- 4. feb – Æfing með hópum úr Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík. Verk í vinnslu sýnt á Vetrarhátíð í Reykjavík – kl. 11:00-14:00
- 11. feb – Lokaviðburður, afrakstur vinnustofa sýndur kl. 14:00-16:00 í SBK húsi í Gróf
- 12. feb – Uppgjör og eftirvinnsla á Dansverkstæðinu í Reykjavík frá kl. 13:00-16:00
Rútuferðir verða í boði.
Nánar um verkefnið hér: https://www.bpart.cz/en